Guðjón A. Kristjánsson:
Virðulegi forseti. Þegar verið var að ræða þær 5 millj. sem voru ætlaðar til þess að styðja við kræklingaeldi hér á landi minnir mig að það hafi komið greinilega fram hér í umræðum að menn teldu að það væri best gert með því að efla og styðja við þau fyrirtæki sem eru í kræklingaeldinu. Þau eru sennilega aðallega þrjú núna hér á landi sem eru í einhverri vegferð í þessu tilliti, þ.e. í Arnarfirði, Eyjafirði og Mjóafirði. Ég hefði talið að það hefði verið staða til þess, a.m.k. eins og ástandið er t.d. í Arnarfirði, að hvetja til þess að fjármunir væru settir þangað til þess að byrja uppskeru. Það er, eins og kom hér fram í máli hv. fyrirspyrjanda, hægt að vinna hér krækling fyrir innanlandsmarkað og hefja vinnslu. Mér er sagt að í Arnarfirði sé kræklingur þegar orðinn það stór að hann sé orðinn markaðshæfur og þá hefði verið æskilegt að ýta þar undir með beinum fjárveitingum. Þess vegna er þessi útdeiling, án þess að ég viti hvernig hún eigi nákvæmlega að fara, ekki alveg ljós.