Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Hæstv. dómsmrh. ætlar greinilega að spyrða okkur hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur saman í andsvörum sínum þar sem hann fer ekki í andsvar við hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur. Ég verð hins vegar á svipuðum nótum.
Það er rétt sem hæstv. ráðherra nefnir að alþjóðavæðingin á netinu gerir fólki og þjóðríkjum erfitt fyrir að standa í fæturna varðandi siðferði og það að reyna að sjá til að fíknir eigi ekki greiðan aðgang að borgurunum. Nú er það svo að við höfum tekið á okkur ákveðna ábyrgð í því sambandi. Samfélagið og samhjálpin býður upp á meðferðarúrræði sem eru sniðin fyrir fólk sem ánetjast fíknum vegna áfengisneyslu og neyslu fíkniefna. Hins vegar hefur ekki í sama mæli verið komið til móts við fólk sem hefur ánetjast spilafíkninni. Við þurfum þess vegna að taka þessi mál til gagngerrar skoðunar.
Varðandi spilakassana sem eru í notkun er nauðsynlegt að það komi fram að lagðar hafa verið fram öflugar og framkvæmanlegar tillögur og hugmyndir í þá átt að hafa betri stjórn á þeim en nú er. Þar má í fyrsta lagi nefna takmarkaðan aðgang barna og ungmenna. Í öðru lagi verðum við að horfa til þeirra kassa sem eru samtengdir. Það má hugsa til þess þegar um þetta mál er fjallað að kassar sem eru samtengdir þar sem gífurlegar upphæðir eru í boði eru auðvitað hættulegri þeim sem veikir eru á svellinu en kassar sem hafa lægri upphæðir að bjóða í spilunum.
Við vitum að það verður ekki hægt að útiloka eða henda þessum spilakössum eða happdrættum út í hafsauga í einu lagi. Hins vegar verðum við að sjá til þess að þær takmarkanir sem okkur eru mögulegar og geta stemmt stigu við neikvæðum afleiðingum verði nýttar. Það er á ábyrgð okkar, ríkisvaldsins, að gera það.