Framkvæmdaáætlanir til að ná fram launajafnrétti kynjanna

Fimmtudaginn 16. október 2003, kl. 12:14:49 (667)

2003-10-16 12:14:49# 130. lþ. 12.13 fundur 15. mál: #A framkvæmdaáætlanir til að ná fram launajafnrétti kynjanna# þál., ISG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 12. fundur, 130. lþ.

[12:14]

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er verkefni sem unnið er að í samfélaginu á þessu sviði en við erum hér að tala um verk ríkisstjórnarinnar, bæði það sem hún hún hefur gert og það sem hún ætlar sér að gera. Það er það sem við eigum að beina sjónum okkar að á hinu háa Alþingi en ekki að seilast inn á önnur svið því víða í samfélaginu er verið að vinna að góðum málum í jafnréttismálum án þess að það sé ríkisstjórninni að nokkru leyti viðkomandi.