Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni fyrir að flytja þetta mál inn í þingsali. Það er virkilega verðugt verkefni að taka til umræðu í þinginu hvernig hægt er að efla forvarnir og eftirlit með tannheilsu barna og stuðla að því að börn fái reglulegt eftirlit með tannheilsu sinni.
Í greinargerð er bent á að tannheilsu barna og unglinga hafi hrakað. Ég dreg það ekki í efa. Ég tengi það líka beint efnahag margra fjölskyldna. Það er alveg örugglega oft látið sitja á hakanum, þegar fólk á erfitt með að láta enda ná saman, að fara reglulega með börnin til tannlæknis.
Ég vil spyrja hv. flutningsmann tillögunnar hvort hún hafi gert tilraun til að láta skoða kostnaðinn við að fara þá leið sem hún leggur til. Hér er verið að tala um að greiða að fullu kostnað við eftirlit og forvarnir hjá ákveðnum hópi barna. Síðan er gert ráð fyrir 90% endurgreiðsluhlutfalli frá Tryggingastofnun ríkisins vegna almennra tannlækninga. Þá er gert ráð fyrir að greiðsluþátttaka Tryggingastofnunar til annarra aldurshópa verði 90% í skoðun, forvörnum og almennum tannlækningum.
Það er ljóst að tillagan felur í sér töluverð útgjöld. Það er náttúrlega mikilvægt að Alþingi, þegar það fjallar um þessa tillögu, geri sér grein fyrir því. Ég tel mikilvægast að við finnum leiðir til að efla með einhverjum hætti forvarnir og eftirlit. Það yrði kannski að taka þetta í áföngum og sleppa því að hafa almennu tannlækningarnar inn í þar sem ég tel litlar líkur til að almenn samstaða náist um þær á þinginu.
Ég tek undir efni þessarar tillögu og vildi mjög gjarnan vita hvað hv. þm. hefur gert í að skoða kostnaðinn við þessa framkvæmd.