Málefni aldraðra

Fimmtudaginn 30. október 2003, kl. 13:45:18 (953)

2003-10-30 13:45:18# 130. lþ. 18.3 fundur 143. mál: #A málefni aldraðra# (gjald í Framkvæmdasjóð) frv., heilbrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 130. lþ.

[13:45]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Í frv. er gert ráð fyrir að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 2,5%, eða úr 5.440 kr. í 5.576 kr. Hækkunin er vegna verðlagsbreytinga en gert er ráð fyrir að byggingavísitala hækki um 2,5% frá árinu 2003 til ársins 2004.

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem eru skattskyldir samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Úr sjóðnum eru m.a. veittir styrkir til byggingar öldrunarstofnana. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra stjórnar sjóðnum og gerir árlega tillögur til heilbr.- og trmrh. um úthlutun úr honum.

Virðulegi forseti. Ég tel brýnt að frv. þetta hljóti afgreiðslu á haustþingi þannig að það fylgi fjárlagafrv. og leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og trn. og til 2. umr.