Almenn hegningarlög

Fimmtudaginn 30. október 2003, kl. 15:39:42 (973)

2003-10-30 15:39:42# 130. lþ. 18.9 fundur 38. mál: #A almenn hegningarlög# (vændi) frv., ÁMöl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 130. lþ.

[15:39]

Ásta Möller (andsvar):

Virðulegi forseti. Sá sjónvarps- eða útvarpsþáttur fór þá fram hjá mér. En það er alveg ljóst að hv. þm. sem fengu boð um að vera með á þessu frv. hafa komið sjónarmiðum sínum á framfæri, gerðu það í viðtali í Morgunblaðinu og útskýrðu efnislega hver afstaða þeirra væri. Hún er alveg fullgild.