Aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum

Fimmtudaginn 30. október 2003, kl. 18:20:51 (994)

2003-10-30 18:20:51# 130. lþ. 18.10 fundur 45. mál: #A aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum# þál., SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 130. lþ.

[18:20]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo virðist sem hv. þm. Árni Steinar Jóhannsson gleypi þessa hagræðingarsíbylju hráa. Það sem ég var að segja áðan er að í raun og veru á engin hagræðing sér stað heldur er verið að auka kostnaðinn og þjóðhagslega er þetta óhagkvæmt.