Aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum

Fimmtudaginn 30. október 2003, kl. 18:21:25 (995)

2003-10-30 18:21:25# 130. lþ. 18.10 fundur 45. mál: #A aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum# þál., ÁSJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 130. lþ.

[18:21]

Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Enn og aftur er hv. þm. að misskilja og snúa út úr málflutningi mínum. Ég er ekkert að gleypa neina hagræðingarsíbylju. Ég er að segja hvernig málin blasa við. Ég er að segja það sem menn í greininni eru að tala um. Ég á ekki Brim. Ég stjórna því ekki. Þeir menn sem það eiga stjórna þar. Það er þeirra ákvörðun. En ég hlusta og geri mér grein fyrir því hvert þeir stefna með sín mál og það er það sem ég er að draga fram og lýsa.