Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Árna Stefánssyni fyrir þessa spurningu. Málið liggur þannig fyrir að það hefur verið lagt fram eða kynnt í ríkisstjórn og eins fyrir þingflokkum stjórnarflokkanna og ég geri ráð fyrir því að hæstv. utanrrh. muni mæla fyrir málinu alveg á næstunni. Ég veit til þess að ráðuneytið er í sambandi við þingið um heppilegan tíma fyrir flutning á þessum málum og er viss um að það verður góður og mikill stuðningur við málið hér.