Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:10:01 (1009)

2003-11-03 15:10:01# 130. lþ. 19.1 fundur 114#B Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri# (óundirbúin fsp.), ÞES
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:10]

Þórarinn E. Sveinsson:

Hæstv. forseti. Ég beini smáfyrirspurn til heilbrrh. vegna fréttaflutnings af niðurskurði á starfsemi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Fyrirspurnin er einföld og hljóðar þannig: Hver er staða þessara mála að mati ráðherrans og hvernig verður staðið að áframhaldandi uppbyggingu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri á næstu missirum?