Gjaldtaka fyrir tæknifrjóvgun krabbameinssjúkra kvenna

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:29:18 (1022)

2003-11-03 15:29:18# 130. lþ. 19.1 fundur 117#B gjaldtaka fyrir tæknifrjóvgun krabbameinssjúkra kvenna# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:29]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Þetta tiltekna mál sem hv. fyrirspyrjandi spyr um hefur ekki komið inn á mitt borð en ég er tilbúinn til þess að láta fara yfir það og skoða þessa greiðsluþátttöku og hvort rök eru fyrir henni. Ég get ekki sagt um það á þessu stigi hvort þarna verður tekin upp breyting en ég mun biðja mitt fólk að fara yfir þessa reglugerð og kanna efni fyrirspurnar hennar. Það er svarið sem ég get gefið um þetta núna á þessu stigi.