Gjaldtaka fyrir tæknifrjóvgun krabbameinssjúkra kvenna

Mánudaginn 03. nóvember 2003, kl. 15:31:01 (1024)

2003-11-03 15:31:01# 130. lþ. 19.1 fundur 117#B gjaldtaka fyrir tæknifrjóvgun krabbameinssjúkra kvenna# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 130. lþ.

[15:31]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Því er við að bæta að greiðsluþátttaka í tæknifrjóvgunum er almennt nokkuð há. Það eru dýrar aðgerðir. En ég endurtek að ég er tilbúinn til að láta skoða þessa reglugerð, hvort til eru undantekningartilvik og hvað þau hafa í för með sér. Ég skil alveg þá aðstöðu sem fyrirspyrjandi lýsir. Ég endurtek að ég hef ekki verið með þetta mál á mínu borði en ég er tilbúinn að taka það upp og láta skoða það.