GMJ fyrir MÞH

Þriðjudaginn 04. nóvember 2003, kl. 13:31:39 (1097)

2003-11-04 13:31:39# 130. lþ. 20.95 fundur 125#B GMJ fyrir MÞH#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 130. lþ.

[13:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég fer nú í fæðingarorlof með vísan til 12. gr. laga um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum, og get því ekki sótt þingfundi næstu þrjá mánuði óska ég eftir því, sbr. 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að varamaður minn á lista Frjálslynda flokksins í Suðurk., Grétar Mar Jónsson skipstjóri, Sandgerði, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Virðingarfyllst,

Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.``

Kjörbréf Grétars Mars Jónssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit.