Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Almennt gilda reglur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og innlend lög og reglur um flug og loftferðir. Það er hins vegar hægt að semja um undanþágu frá þessum almennu reglum með sérstöku samkomulagi og það hefur verið gert vegna æfinga- og þjálfunarþarfa flugsveitar varnarliðsins sem staðsett er hér á landi.
Í umboði varnarmálaskrifstofu utanrrn. hafa Flugmálastjórn Íslands og varnarliðið gert með sér samkomulag um tæknilega framkvæmd æfinga- og þjálfunarflugs.
Í endurskoðuðu samkomulagi Flugmálastjórnar og varnarliðsins frá því í september er kveðið á um að varnarliðið geti notað svokallað LOMA-lágflugsæfingasvæði sem afmarkast af hálendinu sunnan Hofsjökuls, stórum hluta Vatnajökuls og hálendinu norðan Vatnajökuls. Í samkomulaginu er varnarliðinu veitt heimild til að æfa á svæðinu allt að tólf sinnum í hverjum mánuði frá 1. september til 9. maí. Lágflug á þessu svæði er ekki leyft á sumrin vegna umhverfissjónarmiða, en gert er ráð fyrir þeim möguleika að veita undanþágur yfir sumartímann ef um stórar varnaræfingar er að ræða. Að auki hefur varnarliðið heimild til að fljúga lágflug inn á lágflugsæfingasvæðið allt að átta sinnum í mánuði á tímabilinu 1. október til 9. maí. Er þá flogið yfir Faxaflóa, inn yfir Mýrar, yfir Holtavörðuheiði og norður með Langjökli og Hofsjökli inn á lágflugsæfingasvæðið. Þess má geta að dagsetningin 1. október er valin með tilliti til þess að göngum og réttum sé almennt lokið og leiðin því ekki opnuð fyrr en 1. október.
Í stuttu máli er ferlið þannig að varnarliðið óskar eftir heimild Flugmálastjórnar um æfingaflug með þar til greindum fyrirvara. Samþykki Flugmálastjórn gefur hún út svokallaða NOTAM-tilkynningu sem tilkynnir hvar og hvenær æfingaflugið fer fram og lokanir tilheyrandi svæða. Á þessu lágflugsæfingasvæði á hálendinu hafa orustuþoturnar leyfi til að æfa allt niður í 500 feta hæð yfir jörðu. Almennt gildir hins vegar að þoturnar þurfa að vera í a.m.k. 5.000 feta hæð, nema þegar verið er að æfa lendingar og aðflug, t.d. á varaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum.
Að því er varðar spurningu nr. 2 þá er orrustuþotum varnarliðsins ekki leyfilegt að rjúfa hljóðmúrinn yfir landi. Þoturnar mega rjúfa hljóðmúrinn ef þær eru meira en 30 sjómílur frá landi og yfir 10.000 feta hæð.
Að því er varðar síðustu spurninguna, þá vil ég taka fram að þessi mál eru unnin í góðri samvinnu milli Flugmálastjórnar og varnarliðsins og nýbúið er að endurskoða samkomulag milli þessara aðila. Varnarliðið ber ábyrgð samkvæmt varnarsamningnum á vörnum landsins, ekki bara Miðnesheiðar, og verður að geta þjálfað sína flugmenn á viðunandi hátt þannig að þeir kynnist aðstæðum hér og geti einnig uppfyllt sínar innri kröfur um þjálfun og æfingar. Í bandaríska hernum eru skýrar reglur um það að flugmenn verði að að fá ákveðna þjálfun, annars eiga þeir á hættu að missa réttindi sín vegna ófullnægjandi þjálfunar.
Ég sé því ekki betur, herra forseti, en að málin hafi verið og séu í ágætum farvegi hvað æfingaflug varnarliðsins varðar og tel ekki að það sé tilefni til endurskoðunar þeirra að svo komnu máli.