Heimsókn forsætisráðherra Namibíu

Þriðjudaginn 11. nóvember 2003, kl. 14:31:07 (1468)

2003-11-11 14:31:07# 130. lþ. 24.92 fundur 133#B heimsókn forsætisráðherra Namibíu#, Forseti JBjart
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 130. lþ.

[14:31]

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Forseti vill vekja athygli hv. alþingismanna á því að forsætisráðherra Namibíu, herra Theo-Ben Gurirab, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsætisráðherra Namibíu er hér í opinberri heimsókn í boði forsrh. Davíðs Oddssonar. Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forsætisráðherra Namibíu, Theo-Ben Gurirab, velkominn í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landa okkar.

Alþingi vottar forsætisráðherra Namibíu og namibísku þjóðinni vináttu og virðingu og ég bið hv. alþingismenn um að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]