Samningur á sviði refsiréttar um spillingu

Fimmtudaginn 13. nóvember 2003, kl. 18:11:01 (1674)

2003-11-13 18:11:01# 130. lþ. 27.2 fundur 294. mál: #A samningur á sviði refsiréttar um spillingu# þál., RG
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 130. lþ.

[18:11]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Mér finnst sjálfsagt að við fullgildum þennan samning sem fjallar um mútuboð og mútuþágu og áhrifakaup. Þetta eru þekkt fyrirbæri í mörgum vanþróuðum ríkjum og því miður eru dæmi um slíkt á Vesturlöndum líka. Það er mikilvægt að vinna gegn þessu og sjálfsagt að fullgilda samninginn. Ég mun taka þátt í því að yfirfara hann í utanrmn. og vona að það komi aldrei til að það reyni á þessi lög sem við munum að sjálfsögðu setja hér í tengslum við samninginn.