Einkaleyfi

Mánudaginn 17. nóvember 2003, kl. 17:00:55 (1737)

2003-11-17 17:00:55# 130. lþ. 28.3 fundur 303. mál: #A einkaleyfi# (EES-reglur, líftækni) frv., iðnrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 130. lþ.

[17:00]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessar undirtektir við frv. Ég tek undir að það kemur óþarflega seint fram, það er alveg hárrétt. Ég hefði gjarnan viljað mæla fyrir því fyrir svona hálfum mánuði, þremur vikum, en þetta er nú einu sinni svona, það tekur víst dálítinn tíma að koma þessum frv. fram og ná þeim inn í þingið til umfjöllunar. Ég vonast samt til þess að málið geti fengið góða og málefnalega, og helst skjóta, umræðu og afgreiðslu í nefnd ef mögulegt er.