Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil vekja athygli á því að samkvæmt starfsáætlun Alþingis er hvorki þingfundur á morgun né á mánudag þar sem fundir eru í nefndum þingsins á fimmtudag, föstudag og mánudag. Næsti reglulegi þingfundur verður þriðjudaginn 25. nóvember en þá fer fram 2. umr. fjárlaga. Þess má vænta að á mánudag verði stuttur fundur til að útbýta nefndarálitum og breytingartillögum frá fjárln. Sá fundur verður boðaður síðar.