Jón Gunnarsson:
Virðulegi forseti. Það er verulegur samdráttur í tekjum sveitarfélaga í dag. Bæði eru útsvarstekjur að dragast verulega saman og eins tekjur úr jöfnunarsjóði eins og hér var lýst áðan. Þetta kom skýrt fram á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna og það var alveg sama hvaða fulltrúar sveitarfélaganna töluðu þar, þeir töluðu allir einum rómi. Í raun er sama þróun á tekjum ríkisins á þessu ári. Ef við skoðum frv. til fjáraukalaga þá eru tekjur ríkisins vegna tekjutengdra skatta að dragast saman en aftur á móti eru tekjur vegna veltuskatta að hækka verulega. Sveitarfélögin geta ekki lagt á veltuskatta eins og kunnugt er. Þess vegna er alveg ljóst að sá mikli samdráttur sem er í tekjum þeirra mun hafa veruleg áhrif á fjárhag þeirra á þessu ári og einnig á því næsta. Það er alveg nauðsynlegt að ráðast í einhverja endurskoðun og samninga við sveitarfélögin á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það verður ekki undan því vikist.