Fyrirspyrjandi (Álfheiður Ingadóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa umræðu og vil sérstaklega þakka forsrh. fyrir svör hans. Ég tel reyndar að í orðum hans hafi falist nokkurs konar áskorun til þingsins um að það taki þessi mál í sínar hendur og hver veit nema þingið verði skjótlega við því.
Þegar rætt er um löggjöf í þessu sambandi vilja menn kannski helst nefna tvennt sem gæti verið því til fyrirstöðu. Sumir hafa bent á að slíkt kynni að brjóta gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar. Vestur í Bandaríkjunum hafa menn ansi stíf eignarréttarákvæði í sinni stjórnarskrá. Þar hafa menn ekki skirrst við að reisa skorður við eignarhaldi á fjölmiðlum á þann hátt sem hæstv. forsrh. nefndi að þeir sem eiga prentmiðla geti jafnframt ekki átt ljósvakamiðla. Þetta er eitt þeirra atriða sem ég tel eðlilegt að verði skoðað.
Hitt atriðið sem menn nefna og hefur borið á góma hér er Samkeppnisstofnun. Eins og hún er nú góðra gjalda verð þá skyldu menn spyrja sig hvað um hana yrði þegar kannski tveir prentmiðlar og ein ljósvakastöð legðust í umræður og hernað gegn ákvörðun slíkrar stofnunar.
Virðulegur forseti. Fjölmiðlar eiga að veita valdhöfum aðhald en almenningur á að veita fjölmiðlum aðhald. Til þess að svo geti orðið verða menn að vita hverjir eiga fjölmiðlana. Það er aðalatriði eins og hefur komið fram í máli allra hér í dag.