Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og fagna því að leiðréttingar varðandi lífeyrissjóðsgreiðslur til maka starfsmanna utanríkisþjónustunnar eru nú að komast á þó að reyndar séu um tvö ár síðan ég spurði hæstv. ráðherra. Hann sagði þá á þinginu að starfshópurinn væri rétt um það bil að ljúka störfum. En betra er seint en aldrei. Ég vil einnig taka undir með ráðherra að það er ekki oft sem við ræðum á hv. Alþingi um kjör starfsfólks utanríkisþjónustunnar almennt. Meira fer fyrir gagnrýni á fjáraustur utanríkisþjónustunnar. Það er reyndar mjög vinsælt umræðuefni m.a. í fjölmiðlum að horfa einungis á þær fjárhæðir sem fara til utanríkisþjónustunnar en ekki þess árangur ssem þetta fólk er að skila okkur. Í breyttu umhverfi og samfélagi þjóðanna þurfum við á öflugri utanríkisþjónustu að halda. Við þurfum á því að halda að þeir sem starfa þar geti flutt fjölskyldu sína með sér og það þýði ekki verulega kjaraskerðingu og það þýði ekki niðurbrot á sjálfstrausti maka starfsmanna. Þess vegna fagna ég því að leiðréttingar varðandi lífeyriskjör maka flutningsskyldra starfsmanna eru að koma til framkvæmda. En ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort greiðslur í þennan lífeyrissjóð séu einungis á meðan viðkomandi einstaklingur dvelur erlendis en ekki þegar dvalið er hér á landi, því eins og ég sagði áðan þá er það mjög oft þannig að makar starfsmanna utanríkisþjónustunnar fá ekki vinnu þann tíma sem þeir dvelja heima einfaldlega vegna flutningsskyldu makans.