Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Frú forseti. Ég hef skilið það svo að það sé eingöngu meðan viðkomandi dvelur erlendis. Það er hins vegar alveg rétt hjá hv. þm. að það getur verið álitamál vegna þess að viðkomandi einstaklingar dvelja oft og tíðum ekki nema tiltölulega skamma hríð hér á landi áður en þeir fara til nýrra starfa erlendis þannig að jafnvel þótt þeir hafi möguleika á að fá vinnu hér á landi þá getur verið um að ræða að viðkomandi starfsmaður sé frekar ótryggur í sínu starfi og þess vegna eigi slíkir einstaklingar erfiðara með að fá fasta vinnu til framtíðar en almennt gerist á vinnumarkaði. Ég hef skilið það svo að þannig sé þessu máli fyrir komið, ekki aðeins hjá okkur heldur jafnframt hjá nágrannaþjóðum okkar. En ég tel ástæðu til þess að líta á þetta í ljósi reynslunnar. Hér er um að ræða fyrirkomulag sem er að hefja göngu sína og mun áreiðanlega ekki stökkva fullskapað af stað. Þess vegna er ástæða til að líta betur á það þegar reynsla fæst af því.