Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Eins og hér kom fram er mér ekki kunnugt um að komið hafi fram bein beiðni sem lýtur að þessari hugmynd. Ég sé enga ástæðu til að beita mér sérstaklega í málinu. Ef það kemur til okkar með einhverjum hætti þá skoðum við það auðvitað. En það eru ekki allir sammála um að við eigum að lýsa upp náttúrufyrirbæri og t.d. hafa það verið sjónarmið á Umhverfisstofnun að það beri ekki að lýsa upp náttúrufyrirbæri fjarri byggð. Það er talið í lagi að lýsa upp náttúrufyrirbrigði sem eru hluti af menningarlandslagi, má segja. En mér finnst Gullfoss vera þess eðlis að af minni hálfu kæmi til greina að lýsa hann upp.
Menn geta líka spurt sig: Á að lýsa upp Herðubreið uppi á hálendinu? Ég hef miklu meiri efasemdir um það. Það er fjær byggð og ekki sambærilegt við þá hugmynd að eðlilegt gæti verið að lýsa upp Gullfoss. Menn standa t.d. á palli við fossinn og horfa þar yfir svæðið þannig að auðvitað er að vissu leyti búið að snerta það svæði. Af minni hálfu kemur þetta til greina en ég hef ekki sérstaklega í hyggju að beita mér í þessu máli. Hugsanlega kemur það til okkar kasta ef formlegar beiðnir berast.