Fráveituframkvæmdir sveitarfélaga

Miðvikudaginn 19. nóvember 2003, kl. 19:05:44 (1992)

2003-11-19 19:05:44# 130. lþ. 31.11 fundur 228. mál: #A fráveituframkvæmdir sveitarfélaga# fsp. (til munnl.) frá umhvrh., Fyrirspyrjandi SÞorg
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 130. lþ.

[19:05]

Fyrirspyrjandi (Sigurrós Þorgrímsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör. Eins og hér hefur komið fram er þetta mjög mikið áhyggjuefni margra sveitarfélaga, sérstaklega þeirra sem eru rétt að byrja á þessum framkvæmdum og sjá ekki fram á að þau verði búin að ljúka þeim á tilsettum tíma.

Ég heyri á ráðherra að verið er að vinna í þessu máli og það er bara ósk mín og von að þessi tími verði lengdur.