Fjárlög 2004

Þriðjudaginn 25. nóvember 2003, kl. 17:02:40 (2041)

2003-11-25 17:02:40# 130. lþ. 33.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., Frsm. meiri hluta MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur, 130. lþ.

[17:02]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hélt því ekki fram að hv. þm. hafi sagt að ég hafi gefið loforð, þannig að það sé hreinsað á milli okkar. Það kom ekki fram í máli hv. þm. Ég taldi bara rétt að koma hér og nefna þetta mál og færa rök fyrir því hvernig staða þess er.