Jón Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég veit að það munu verða vonbrigði á Suðurnesjum ef ekki tekst að ráðast í nema utanhússviðhald á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á næsta ári þó að ég skilji það að erfitt sé að finna fjármuni með tiltölulega skömmum fyrirvara til að ráðast í þær breytingar sem starfshópur um framtíð og rekstur þessarar stofnunar hefur lagt fyrir ráðherra.
Þó verð ég að segja það eins og er að hæstv. ráðherra tók mjög vel undir þær hugmyndir sem kynntar voru fyrir sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum og ef ekki verður með einhverjum hætti hægt að standa við þau fyrirheit sem menn töldu sig fá á þeim fundi þá hefði að mörgu leyti verið betra að sleppa þeim heldur en að taka undir hugmyndirnar eins og okkur fannst hæstv. ráðherra gera. Við sem störfum í sveitarstjórnum á Suðurnesjum, búum þar og notum þjónustu þessarar stofnunar, viljum sjá breytingar. Við viljum sjá að þessi stofnun verði efld á ný og betur búið að henni til þess að veita þá þjónustu sem íbúarnir telja eðlilega og sjálfsagða í sínu nánasta umhverfi miðað við það að nú er árið 2003.
En enn og aftur, virðulegi forseti, ég ætla ekki að reyna að hljóma hér neikvæður og með alla hluti á hornum mér, heldur lýsi ég því yfir í fullri vinsemd og jákvæðni að við erum tilbúin til þess á Suðurnesjum að vinna með ráðherranum á allan hátt til þess að reyna að koma þessum hugmyndum í framkvæmd.