Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka bara enn og aftur. Það var áréttað sem ég sagði, að þó að ekki sé að finna um það stafkrók í þessu fjárlagafrv. að það eigi að hefja rekstur heilsugæslustöðvar í Hafnarfirði er hv. þm., formaður heilbr.- og trn., búin að segja frá því núna í tvígang í þessum ræðustóli að rekstur muni hefjast síðla á næsta ári. Mér finnst það of seint en það er betra en ekkert. Í þessu fjárlagafrv. er því miður ekki að finna nema tvær heilsugæslustöðvar, í Salahverfi í byrjun janúar og í lok ársins í Voga- og Heimahverfi.
Ég hlýt náttúrlega, miðað við allar aðstæður, að fagna því að Hafnarfjörður sé kominn inn í myndina þó að það verði ekki fyrr en seint á næsta ári. Ég vænti þess að ríkisstjórnarflokkarnir báðir standi þá heils hugar að því að þetta nái fram að ganga.