Kolbrún Halldórsdóttir:
Hæstv. forseti. Þjóðminjasafnið hefur verið lokað í sex ár. Nú hillir undir að það verði opnað á vori komanda, á sumardaginn fyrsta ef vel gengur. En til þess að svo megi verða og til þess að Þjóðminjasafnið verði opnað með grunnsýningu sem hefur að geyma þjóðargersemar okkar en ekki bara tóma skápa og innréttingar þá þarf að samþykkja 47 millj. kr. fjárveitingu í grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Út á það gengur þessi brtt. Ætli menn að mæta prúðbúnir í opnun Þjóðminjasafnsins til þess að sjá þjóðargersemar okkar þá er eins gott að greiða þessari tillögu atkvæði.
Sömuleiðis eru hér greidd atkvæði um tillögu um að Reykholtsrannsóknir Þjóðminjasafnsins fái áfram brautargengi og sömuleiðis að Þjóðminjasafnið geti haldið áfram að skrá inn í gagnagrunninn Sarp þær þjóðargersemar sem safnið hefur að geyma. Ég segi já.