Málaskrá lögreglu

Miðvikudaginn 03. desember 2003, kl. 19:54:06 (2518)

2003-12-03 19:54:06# 130. lþ. 41.17 fundur 230. mál: #A málaskrá lögreglu# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., Fyrirspyrjandi GÓJ
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 130. lþ.

[19:54]

Fyrirspyrjandi (Guðjón Ólafur Jónsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir mjög greinargóð og skýr svör. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra er stefnt að því að þessi nýja málaskrá verði komin í gagnið 1. október 2004. Við verðum að vona að það gangi eftir og að öll vinna við gerð málaskrárinnar gangi samkvæmt áætlun.

Markmiðið er betri löggæsla og betri þjónusta við almenning eins og ráðherra gat um. Ég vil hvetja ráðherra til að vinna áfram á þessari braut og þakka honum aftur kærlega fyrir skýr og greinargóð svör.