Lyfjaverð og fákeppni á lyfjamarkaði

Fimmtudaginn 04. desember 2003, kl. 10:56:36 (2571)

2003-12-04 10:56:36# 130. lþ. 42.95 fundur 209#B lyfjaverð og fákeppni á lyfjamarkaði# (umræður utan dagskrár), Flm. ÖJ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.

[10:56]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Að undanförnu hefur farið fram mikil umræða í þjóðfélaginu um fákeppni, einokun og óeðlilegt verðsamráð á ýmsum sviðum í efnahagslífinu, í verslun og þjónustu, olíusölu, í tryggingum, banka- og fjármálastarfsemi og nú síðast hafa sjónir manna beinst að lyfjum og fákeppni á sviði lyfjasölu.

Það er ekkert nýtt að menn horfi til verðlags á lyfjum einfaldlega vegna þess að fjölmargt fólk þarf nauðsynlega, jafnvel lífsnauðsynlega á þeim að halda og er lyfjakostnaður verulegur útgjaldaliður hjá mörgu fólki. Þegar horft er til þjóðarbúsins í heild sinni þá var heildarvelta verslunar með lyf á síðasta ári 12,5 milljarðar kr. og ef litið er til hins opinbera nema lyfjaútgjöld Tryggingastofnunar ríkisins 6 milljörðum kr. og Landspítala -- háskólasjúkrahúss rúmlega 2 milljörðum kr. Er þetta annar mesti útgjaldaliður sjúkrahússins næst á eftir launakostnaði eða 29% rekstrargjalda.

Samkvæmt upplýsingum heilbr.- og trmrn. hefur lyfjakostnaður aukist stigvaxandi síðasta hálfan annan áratug. Á þessum tíma jókst lyfjanotkun um 50% en á sama tíma hækkaði lyfjakostnaðurinn um meira en 200% á föstu verðlagi og mest varð hækkunin á síðustu tveimur árum. Það gefur augaleið að miklu máli skiptir að verðlagning á lyfjum sé eðlileg því hagsmunir einstaklinga og skattgreiðenda eru í húfi.

Þegar grundvallarbreyting var gerð á lyfjalögum í maí árið 1994 og kom til framkvæmda í mars 1996 var þjóðinni sagt að markmiðið væri að stuðla að samkeppni sem mundi í senn færa okkur lægra lyfjaverð og betri þjónustu. En hvað hefur gerst?

Þrjú fyrirtæki skipta með sér innflutningnum og heita má að tvær stórar samsteypur skipti með sér smásölumarkaðnum, annars vegar Lyf og heilsa og hins vegar Lyfja og virðast þær ganga langt í því að reyna að bola smærri aðilum út af markaði.

Í Morgunblaðinu 6. og 7. maí sl. var fjallað ítarlega um þessi mál. Þar var m.a rætt við Þorvald Árnason sem fyrstur opnaði apótek eftir að lyfjasalan var gefin frjáls. Hann hefur nú hrökklast frá Suðurnesjum með starfsemi sína og segir við blaðið að lyfjasamsteypurnar séu að þrengja að samkeppninni.

Jón Grétar Ingvason, lyfsöluhafi í Hringbrautarapóteki í Reykjavík, segir að önnur samsteypan, Lyf og heilsa, hafi ítrekað reynt að kaupa sig upp en þegar hann hafi ekki reynst vera til sölu þá opnaði samsteypan apótek við hliðina á verslun hans. Sama hefur gerst í Vestmannaeyjum. Tilgangurinn virðist augljós, að bola smærri aðilum út af markaði.

Í viðtali við Morgunblaðið segir Jón Grétar Ingvason það vera umhugsunarefni fyrir stjórnvöld hvort ekki sé orðið tímabært að endurskoða samkeppnislög og lyfjalög þar sem sú staða sé augljóslega að koma upp hérlendis að tvær lyfsölukeðjur séu að leggja markaðinn undir sig og koma á fákeppni í stað samkeppni.

[11:00]

Á sjúkrahúsunum er þessi fákeppni farin að segja til sín. Hjá Landspítala -- háskólasjúkrahúsi hafa forsvarsmenn spítalans t.d. kvartað yfir því að útboðsleiðin virki ekki. Það megi rekja til þess að lyfjamarkaðurinn hafi breyst á undanförnum árum. Svipaðar ábendingar hafa heyrst frá forsvarsmönnum Tryggingastofnunar ríkisins. Karl Steinar Guðnason segir að athuganir á verðlagi 10 útgjaldamestu lyfja Tryggingastofnunar hafi leitt í ljós að þau séu allt að 93% dýrari hér á landi en í nágrannalöndunum. Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala -- háskólasjúkrahúsi, bendir á að ein ástæða hækkunar á lyfjum sé fákeppni vegna sameiningar lyfjafyrirtækja. Orðrétt segir hann í fréttaviðtali í Morgunblaðinu, með leyfi forseta:

,,Mörg þeirra lyfja, sem eru sömu tegundar og hafa sömu grunnefnin, eru komin á eina hendi hjá sama umboðsaðila hér á landi. Í þeim tilvikum er um einokun að ræða en ekki bara fákeppni.``

Herra forseti. Allt ber að sama brunni. Markmið laganna frá 1994 hafa ekki náð fram að ganga. Í stað samkeppni, lægra verðlags og fjölbreyttari þjónustu blasir við fákeppni og hærra lyfjaverð en tíðkast í nágrannalöndum okkar. Þetta hefur gerst þrátt fyrir meinta hagræðingu í greininni, batnandi samgöngur og lækkandi flutningskostnað sem og hagstæða gengisþróun fyrir innflutningsverslun. Forsvarsmenn smærri lyfjafyrirtækjanna, Tryggingastofnunar ríkisins og sjúkrastofnana lýsa óánægju og áhyggjum yfir því hvert stefnir og kalla jafnvel eftir lagasetningu eins og hér hefur verið vikið að.

Þá eru ónefndir sjúklingar sem þurfa að gjalda fákeppninnar. Ríkisstjórninni ber að taka á fákeppni í lyfjaverslun í stað þess að hækka álögur á sjúklinga en hækkun álagna á sjúklinga í þessum fjárlögum nemur 740 millj. kr. (Forseti hringir.) Það er mín skoðun en hver er afstaða hæstv. viðskrh., hvað hefur ráðuneytið aðhafst og hvað stendur til að gera í þessum efnum?