Úrvinnslugjald

Fimmtudaginn 04. desember 2003, kl. 13:37:16 (2616)

2003-12-04 13:37:16# 130. lþ. 42.5 fundur 400. mál: #A úrvinnslugjald# (net, umbúðir o.fl.) frv. 144/2003, KolH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.

[13:37]

Kolbrún Halldórsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég sé á töflunni að hv. þm. hafa ekki tekið tillögu mína hér áðan gilda þannig að þeir ætla að taka þá ákvörðun að vísa málinu til hv. efh.- og viðskn. Þá langar mig til að óska eftir því hér að hv. efh.- og viðskn. vísi málinu til umsagnar í umhvn. Það er mjög nauðsynlegt að umhvn. fái þetta mál til skoðunar.