Guðjón A. Kristjánsson:
Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það að standa að stofnun og eflingu veiðarfærarannsókna á Ísafirði. Tillagan er flutt í samræmi við m.a. tillögur Vestfirðinga um sérstakar aðgerðir í byggðamálum. Ég legg eindregið til að menn ljái þessu atkvæði sitt.