Fjárlög 2004

Föstudaginn 05. desember 2003, kl. 14:33:07 (2798)

2003-12-05 14:33:07# 130. lþ. 43.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 130. lþ.

[14:33]

Guðjón A. Kristjánsson:

Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um fjárveitingu til bygginga SÍBS á Reykjalundi. Þetta erindi hefur þrisvar verið borið fyrir fjárln. og því hefur þrisvar verið hafnað, ef því verður hafnað nú sem allt bendir til miðað við töfluna. Ég tel að lítil virðing sé borin fyrir því ágæta starfi sem þau samtök hafa staðið fyrir með þessari afgreiðslu í hv. Alþingi.