Eldi nytjastofna sjávar

Föstudaginn 05. desember 2003, kl. 15:30:35 (2824)

2003-12-05 15:30:35# 130. lþ. 43.11 fundur 344. mál: #A eldi nytjastofna sjávar# (erfðablöndun) frv., SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 130. lþ.

[15:30]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Frú forseti. Sér þá hæstv. sjútvrh. ekki að hæstv. umhvrh. eigi að koma að þessu máli? Hér er óumdeilt um umhverfismál að ræða. Við erum hér að gera hlut Hafrannsóknastofnunar lítinn þó að við teljum að þetta mál eigi að heyra alfarið undir hæstv. umhvrh. Það gefur augaleið að hér er um umhverfismál að ræða og það á ekki að blanda því inn í atvinnumálaráðuneyti.

Ég vil ítreka þetta: Sér hæstv. sjútvrh. ekki að hæstv. umhvrh. eigi að koma hér að málum?