Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Föstudaginn 05. desember 2003, kl. 16:09:33 (2838)

2003-12-05 16:09:33# 130. lþ. 43.16 fundur 417. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (sauðfjárbændur) frv. 131/2003, Flm. DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 130. lþ.

[16:09]

Flm. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil bara þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni aftur fyrir hans jákvæðu orð hér. Ég tek undir með honum að það er styrkur fyrir íslenska þjóð að halda landinu í byggð, það eru mikil verðmæti fólgin í því, og sauðfjárbændur eru sannarlega hinn sterki hlekkur í hinum dreifðu byggðum landsins.