Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 10:22:14 (2850)

2003-12-06 10:22:14# 130. lþ. 44.2 fundur 420. mál: #A greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks# (tímabundin vinnslustöðvun o.fl.) frv. 136/2003, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[10:22]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel að á þeim dögum sem eftir eru af þessu þingi, áður en við förum heim í jólafrí, gefist nægur tími til þess að fjalla um þetta mál. Hvað varðar aðra spurningu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur þá hefur engin önnur ákvörðun verið tekin en sú að leggja fram það frv. sem hún gerði hér að umtalsefni.