Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 12:14:50 (2883)

2003-12-06 12:14:50# 130. lþ. 44.2 fundur 420. mál: #A greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks# (tímabundin vinnslustöðvun o.fl.) frv. 136/2003, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[12:14]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og ítrekað hefur komið fram í máli mínu í dag þá tel ég að með þeim breytingum sem hér er lagt til að verði gerðar á þessum lögum sé ekki verið að kollvarpa því kerfi sem í gildi hefur verið og að ekki sé um grundvallarbreytingar að ræða.