Stjórn fiskveiða

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 13:45:42 (3018)

2003-12-10 13:45:42# 130. lþ. 47.1 fundur 428. mál: #A stjórn fiskveiða# (línuívilnun o.fl.) frv. 147/2003, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 130. lþ.

[13:45]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að síðasta ræða hv. þm. ætti betur heima í dægurmálaþáttum ljósvakamiðlanna en í sölum Alþingis. (Gripið fram í: Ég skil þig vel að vilja ...) Ég legg mat á orð hans í því ljósi og ætla ekkert að fjalla meira um þau hér.