Jón Bjarnason (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson mun væntanlega koma á eftir og fara ítarlegar í þær tillögur sem hér eru lagðar fram af hæstv. ráðherra. En þær eru mjög ólíkar þeim tillögum sem hv. þm. lagði fram í sjútvn. og í grundvallaratriðum ólíkar. Þær hugmyndir sem hv. þm. lagði þar fram fannst mér á ýmsan hátt vera, ef hægt er að segja það í þessu samhengi, hugsanlega skynsamlegri, þ.e. ef nota má það orð í þessari umræðu.
Ég vil líka heyra hvaða orðum hv. þm. fer um byggðakvóta sem hv. þm. hefur nú barist fyrir og viljað í raun eiga til þess að bæta upp í verstu göt kvótakerfisins, þó svo að það sé engan veginn varanlegt fiskveiðistjórnarkerfi að stoppa í það tímabundið með slíkum kvótum. Engu að síður hefur hv. þm. lagt þunga áherslu á þetta, bæði í málflutningi sínum og í kosningabaráttunni og áhersla á byggðakvótann speglast í stefnu Framsfl. Hún felur í sér vissa tryggingu byggðanna, íbúanna. En hvað svo sem hæstv. sjútvrh. segir er verið að skerða þetta með frv. Það er verið að skerða þá möguleika að ráðstafa byggðakvótum til sveitarfélaga eða til útgerða eða vinnslustöðva þó svo hluti af þeim fari síðan til ráðherrans.
Ég bíð spenntur eftir því að heyra ræðu hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar um það hvernig hann ber þessa tillögu saman við stefnu Framsfl. og þær tillögur sem hv. þm. lagði fram í sjútvn.