Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Fyrst út af spurningu hv. þm. þá vil ég segja það, eins og ég margoft hef tekið fram, að það liggur auðvitað fyrir og það stendur í þessum texta að það verði smám saman horfið frá þessum byggðapottum eins og þeir hafa verið. Við erum hins vegar að setja í lög, (Gripið fram í.) það er verið að taka út, eins og ég segi, og það þarf ekki annað en að lesa þennan texta, það sést alveg, að það er verið að taka út þessa (Gripið fram í.) byggðapotta eins og þeir hafa verið. En það sem ég var einfaldlega að segja og skiptir öllu máli í þessu sambandi er að verið er að gera byggðakvótaúthlutanir miklu markvissari. Verið er að setja inn í lögin ákvæði um það með hvaða hætti beita eigi byggðaúthlutunum, einfaldlega vegna þess að við höfðum þá reynslu og var bent á það hér í þingsölum að byggðakvótaúthlutanirnar stæðu ekki undir nafni. Þær væru að fara m.a. til byggðarlaga sem hefðu bara ekkert með þær að gera. Gleggsta dæmið er þetta fræga dæmi um Akureyri, stærsta kvótabæ landsins, sem fékk 5 tonn og olli bara tómum vandræðum.
Menn eru því einfaldlega að segja hér: Við þurfum að skilgreina þetta upp á nýtt. Við erum að setja niður önnur markmið, skýr markmið, og það er það sem er verið að gera í þessum lögum.
Mér fannst, virðulegi forseti, að í fyrra andsvari sínu hefði hv. þm. skilið þetta en ég veit ekki hvort ég hef ruglað hann, en hann er greinilega farinn að misskilja þetta aftur núna við það að ég kom í þetta litla andsvar mitt.
Varðandi dagakerfið þá hef ég margsagt það og get sagt það enn og aftur hér á þessum degi að ég tel að það sé algerlega um tómt mál að tala að við getum verið með sóknarstýrt kerfi nema stjórna um leið flotanum. Þess vegna hef ég verið mjög harður á því að samfara því að við erum að fara í endurskoðun á dagakerfinu sem slíku þá verðum við líka að hyggja að flotastýringunni og það var það sem menn voru að gera á síðasta vetri. Það vantaði ekki mikið upp á að menn næðu saman og ég hef þess vegna hvatt til þess að menn héldu áfram þeim viðræðum og reyndu að ná samkomulagi og sátt í því máli. En forsendan er sem sagt þessi: Það verður að vera flotastýring í þessu kerfi.