Stjórn fiskveiða

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 21:53:25 (3109)

2003-12-10 21:53:25# 130. lþ. 47.1 fundur 428. mál: #A stjórn fiskveiða# (línuívilnun o.fl.) frv. 147/2003, KLM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 130. lþ.

[21:53]

Kristján L. Möller (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hlustaði með athygli á flutning hæstv. sjútvrh. á málinu fyrr í dag, þær tíu mínútur sem það tók. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hlustað á allar ræður sem hér hafa verið fluttar í dag. Ég ætla að kynna mér það betur sem hann var að tala um en vil spyrja hvort ég sé nokkuð að misskilja það mál, að það verði fráteknar heimildir til þessara staða. (Sjútvrh.: Ég er búinn með mín andsvör.) Nei, það er rétt. Við komum kannski að því í seinni ræðu minni á eftir.