Flm. (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Ég tók eftir því að hv. þm. Ögmundur Jónasson lagði upp úr því að það væri samræmi á milli ábyrgðar og launa í þeim hópi sem er hér í þessum sal en á hinn bóginn virtist hann misskilja að það væri ákveðið með þessu frv. hver laun forsrh. og annarra ráðherra væru. Laun þeirra eru ákveðin af Kjaradómi en ekki með þessu frv. (Gripið fram í.) Með hliðsjón af þessum misskilningi og eftir að hann hefur verið leiðréttur leiðréttist um leið ýmislegt annað sem hv. þm. sagði.