Alþjóðleg viðskiptafélög

Fimmtudaginn 11. desember 2003, kl. 17:21:55 (3202)

2003-12-11 17:21:55# 130. lþ. 48.9 fundur 312. mál: #A alþjóðleg viðskiptafélög# (brottfall laga o.fl.) frv. 133/2003, Frsm. PHB
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.

[17:21]

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum, nr. 31/1999, um alþjóðleg viðskiptafélög.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þóru Hjaltested frá viðskiptaráðuneytinu.

Umsagnir bárust frá Samtökum iðnaðarins, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaeftirlitinu, Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja, Samtökum verslunarinnar -- Félagi íslenskra stórkaupmanna, Seðlabanka Íslands, Félagi löggiltra endurskoðenda, Lögmannafélagi Íslands, Alþýðusambandi Íslands, Kauphöll Íslands og Verslunarráði Íslands.

Með frumvarpinu er lagt til að útgáfu starfsleyfa til alþjóðlegra viðskiptafélaga verði hætt frá og með 1. janúar 2004 og að starfsleyfi félaga sem þegar hafa fengið starfsleyfi falli úr gildi 1. janúar 2008 samhliða því að lögin falla úr gildi.

Í ljósi þeirrar reynslu sem fengin er af lögunum og röksemda sem tíundaðar eru í greinargerð lýsir nefndin sig fylgjandi frumvarpinu. Nefndin telur þó rétt að að gefa markaðnum ráðrúm til að átta sig á breytingunum og leggur því til að ekki verði tekið fyrir útgáfu nýrra starfsleyfa fyrr en 1. mars 2004.

Þetta er gert vegna þess að menn geta verið að sækja um slík leyfi allt til áramóta og þá er óeðlilegt að ráðuneytinu gefist ekki tóm til að afgreiða viðkomandi umsóknir ef einhverjar skyldu berast. Þarna er því tekið mið af því að eðlilegur gangur sé á vinnslu slíkra leyfa.

Nefndin leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri breytingu:

,,Í stað dagsetningarnar ,,31. desember 2003`` í ákvæði til bráðabirgða komi: 1. mars 2004.``

Hv. þm. Ögmundur Jónasson og Jóhanna Sigurðardóttir skrifa undir álitið með fyrirvara við breytingartillöguna. Össur Skarphéðinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Kristinn H. Gunnarsson, Gunnar Birgisson, Birgir Ármannsson, Páll Magnússon, Lúðvík Bergvinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, og Ögmundur Jónasson, með fyrirvara.