Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks

Fimmtudaginn 11. desember 2003, kl. 23:49:02 (3238)

2003-12-11 23:49:02# 130. lþ. 48.19 fundur 420. mál: #A greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks# (tímabundin vinnslustöðvun o.fl.) frv. 136/2003, Frsm. GÞÞ
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.

[23:49]

Frsm. félmn. (Guðlaugur Þór Þórðarson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 51/1995, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks, á þskj. 640.

Nefndin hefur fengið á sinn fund Hermann Sæmundsson og Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur frá félagsmálaráðuneyti, Aðalstein Á. Baldursson og Kristján Bragason frá Starfsgreinasambandi Íslands, Halldór Grönvold frá ASÍ og Arnar Sigurmundsson frá Samtökum fiskvinnslustöðva.

Eftir fund nefndarinnar með áðurgreindum aðilum 9. desember 2003 barst nefndinni boð um samkomulag sem tekist hafði á milli félagsmálaráðherra, fulltrúa Samtaka fiskvinnslustöðva og fulltrúa Starfsgreinasambands Íslands, og hefur nefndin tekið tillit til samkomulagsins í áliti þessu.

Nefndin leggur áherslu á að fram fari vinna við endurskoðun laga nr. 19/1979 og þá helst 3. gr. þeirra í samstarfi félagsmálaráðuneytis, Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka fiskvinnslustöðva.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem fylgja á nál. þessu.

Undir nál. skrifa hv. þm. Hjálmar Árnason, Guðlaugur Þ. Þórðarson, Guðjón Hjörleifsson, Pétur H. Blöndal, Birkir J. Jónsson, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Helgi Hjörvar, með fyrirvara, Margrét Frímannsdóttir, með fyrirvara, og Gunnar Örlygsson, með fyrirvara.

Hv. þm. Ögmundur Jónasson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu en með fyrirvara.