Frsm. meiri hluta sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson) (andsvar):
Herra forseti. Það sem hv. þm. Jón Bjarnason flaskar á í samlagningu sinni er að í þeim 12 þús. þorskígildum í 9. gr. sem hann er að gera ráð fyrir þá hefur stærstum hluta þess verið úthlutað til aflamarksbáta, ekki varið til aflabrests og ekki varið til byggðaúthlutunar. Á því verður breyting og sú breyting gerir það að verkum að heildaráhrifin verða jákvæð í þeim skilningi að það magn sem menn hafa til ráðstöfunar til úthlutunar til byggðakvóta mun aukast. Það er meginbreytingin á því sem meiri hluti sjútvn. leggur til. Eins og hv. þm. kannski man þá setti ég fyrirvara við málið og reyndar fleiri úr mínum þingflokki eftir fyrstu skoðun því mönnum sýndist að svo gæti farið að byggðakvótinn mundi minnka ef farið yrði að tillögu frv. Eftir athugun málsins og breytingartillögur sem við flytjum mun það ekki gerast heldur hið gagnstæða, þ.e. það magn sem ráðstafað er til byggðakvóta mun aukast. Þess vegna er það grundvallarbreyting hvað þennan þátt málsins varðar.
Ég vil að öðru leyti taka undir það sem fram kom hjá hv. þm. Við erum í tilteknu kerfi sem er mjög gallað og að mínu mati meingallað. Alvarlegar afleiðingar hljótast af því. Auðvitað eru ýmsir kostir í því líka. Við skulum ekki horfa fram hjá því. En það eru alvarlegir gallar á því og menn eru að velta fyrir sér hvernig eigi að taka á þeim göllum. Ég hef viljað miklu róttækari leiðir til þess að komast fram hjá þessum ágöllum og inn í skaplegra kerfi. Það er ekki stuðningur við það í þjóðfélaginu í dag að skipta um kerfi í fiskveiðum. Þess vegna hef ég valið að reyna að vinna að því að breyta gildandi kerfi, reyna að bæta það þannig að við tökum á þessum ágöllum og gerum þá þolanlegri. Það má kalla bótasaum. Ég hef svo sem gert það stundum líka, sagt að þetta væri eins og að bæta götótta flík. En það er þó til bóta, herra forseti. (JBjarn: En gatið er áfram undir.)