Sigurjón Þórðarson:
Herra forseti. Með þessu frv. eru stjórnvöld að etja sjómönnum landsins saman undir því yfirskyni að verið sé að bæta handónýtt fiskveiðistjórnarkerfi, kerfi sem skilar okkur helmingi minni afla en fyrir daga kerfisins. Í frv. felst skerðing á byggðakvóta og dagabátar fá enga tryggingu fyrir lágmarksfjölda daga. Og meira að segja er í frv. ákvæði sem stríðir beinlínis á móti fiskvernd og þá á ég við út frá forsendum kerfisins sjálfs. Þess vegna segjum við í Frjálslynda flokknum nei.