Jólakveðjur

Mánudaginn 15. desember 2003, kl. 13:01:35 (3507)

2003-12-15 13:01:35# 130. lþ. 51.96 fundur 254#B Jólakveðjur#, BH
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 130. lþ.

[13:01]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar alþingismanna þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf á þessu haustþingi og hlý orð í garð okkar alþingismanna. Ég óska forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég vil einnig þakka starfsfólki Alþingis fyrir ánægjulegt samstarf á því ári sem nú er að líða og óska því gleðilegrar jólahátíðar.

Ég bið hv. alþingismenn að taka undir óskir mínar til forseta Alþingis og starfsfólks Alþingis með því að rísa úr sætum.