Fundargerð 130. þingi, 0. fundi, boðaður 2003-10-01 13:30, stóð 13:58:18 til 14:30:16 gert 1 15:13
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

miðvikudaginn 1. okt.

Árið 2003, miðvikudaginn 1. október, var hundrað og þrítugasta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og sjötta aðalþing í röðinni en hundrað fertugasta og fimmta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu kl. 1.15 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Ólafur Jóhannsson predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  2. Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykv. s.
  3. Árni R. Árnason, 2. þm. Suðurk.
  4. Árni Magnússon, 11. þm. Reykv. n.
  5. Árni M. Mathiesen, 1. þm. Suðvest.
  6. Ásta R. Jóhannesdóttir, 4. þm. Reykv. s.
  7. Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s.
  8. Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðaust.
  9. Bjarni Benediktsson, 11. þm. Suðvest.
  10. Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurk.
  11. Björn Bjarnason, 4. þm. Reykv. n.
  12. Bryndís Hlöðversdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  13. Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  14. Davíð Oddsson, 2. þm. Reykv. n.
  15. Drífa Hjartardóttir, 5. þm. Suðurk.
  16. Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvest.
  17. Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest.
  18. Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðaust.
  19. Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s.
  20. Guðjón Hjörleifsson, 8. þm. Suðurk.
  21. Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest.
  22. Guðlaugur Þór Þórðarson, 6. þm. Reykv. n.
  23. Guðmundur Hallvarðsson, 8. þm. Reykv. s.
  24. Guðmundur Árni Stefánsson, 2. þm. Suðvest.
  25. Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurk.
  26. Guðrún Ögmundsdóttir, 5. þm. Reykv. n.
  27. Gunnar Birgisson, 3. þm. Suðvest.
  28. Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest.
  29. Halldór Ásgrímsson, 7. þm. Reykv. n.
  30. Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust.
  31. Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykv. n.
  32. Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurk.
  33. Jóhann Ársælsson, 2. þm. Norðvest.
  34. Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s.
  35. Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.
  36. Jón Gunnarsson, 10. þm. Suðurk.
  37. Jón Kristjánsson, 4. þm. Norðaust.
  38. Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykv. s.
  39. Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvest.
  40. Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n.
  41. Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvest.
  42. Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.
  43. Lúðvík Bergvinsson, 4. þm. Suðurk.
  44. Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.
  45. Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.
  46. Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  47. Mörður Árnason, 7. þm. Reykv. s.
  48. Pétur H. Blöndal, 3. þm. Reykv. s.
  49. Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Suðvest.
  50. Sigríður A. Þórðardóttir, 6. þm. Suðvest.
  51. Sigurður Kári Kristjánsson, 10. þm. Reykv. n.
  52. Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest.
  53. Siv Friðleifsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  54. Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  55. Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust.
  56. Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest.
  57. Tómas Ingi Olrich, 6. þm. Norðaust.
  58. Valgerður Sverrisdóttir, 1. þm. Norðaust.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 8. þm. Suðvest.
  60. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvest.
  61. Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykv. s.
  63. Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:02]

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman miðvikudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.


Ávarp aldursforseta.

[14:18]

Aldursforseti, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, bauð alþingismenn velkomna til starfa og lét í ljós þá ósk að störf Alþingis mættu verða alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.


Varamenn taka þingsæti.

[14:19]

Aldursforseti las bréf þess efnis að Kjartan Ólafsson tæki sæti Árna R. Árnasonar, 2. þm. Suðurk., Sigurrós Þorgrímsdóttir tæki sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, 8. þm. Suðvest., og Sigurlín M. Sigurðardóttir tæki sæti Gunnars Örlygssonar, 10. þm. Suðvest.

Sigurrós Þorgrímsdóttir, 8. þm. Suðvest., og Sigurlín M. Sigurðardóttir, 10. þm. Suðvest., undirrituðu drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.


Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[14:23]

Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust., hlaut 40 atkvæði, 14 þingmenn greiddu ekki atkvæði.


Ávarp forseta.

[14:25]

Hinn nýkjörni forseti gekk til forsetastóls og ávarpaði þingmenn.

Fundi frestað kl. 14:30.

---------------