2. FUNDUR
fimmtudaginn 2. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
Birting efnis úr stefnuræðu forsætisráherra.
Forseti skýrði frá fundi með formönnum þingflokka um trúnaðarbrot er fréttastofa birti efni úr stefnuræðu forsætisráðherra.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra tólf mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir sex mínútur en fimm í hinni þriðju. Röð flokkanna var í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, Guðlaugur Þór Þórðarson, 6. þm. Reykv. n., í annarri umferð og Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest., í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n., Ágúst Ólafur Ágústsson, 10. þm. Reykv. s. í annarri, og Anna Kristín Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðvest., í hinni þriðju.
Fyrir Framsóknarflokk talaði Guðni Ágústsson landbrh. í fyrstu umferð, Hjálmar Árnason, 6. þm. Suðurk., í annarri og í hinni þriðju Jón Kristjánsson heilbrrh.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n., og í hinni þriðju Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk., og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest., í fyrstu umferð, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, 10. þm. Suðvest., í annarri umferð og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest., í hinni þriðju.
[20:59]
Fundi slitið kl. 22:05.
---------------