Fundargerð 130. þingi, 124. fundi, boðaður 2004-05-24 19:50, stóð 19:50:03 til 21:49:13 gert 24 22:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

124. FUNDUR

mánudaginn 24. maí,

kl. 7.50 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar voru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Þær fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru:

Fyrir Samfylkinguna talaði í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n., í annarri umferð Margrét Frímannsdóttir, 1. þm. Suðurk., en í þriðju umferð talaði Kristján L. Möller, 3. þm. Norðaust.

Fyrir Sjálfstæðisflokk talaði í fyrstu umferð Geir H. Haarde fjármálaráðherra, í annarri Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, en í þeirri þriðju Sigurður Kári Kristjánsson, 10. þm. Reykv. n.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs voru í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 9. þm Reykv. s., í annarri umferð Þuríður Backman, 10. þm. Norðaust., en Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk talaði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í fyrstu umferð, Árni Magnússon félagsmálaráðherra í annarri, en í þriðju umferð Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk., og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest., en Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvest., í annarri og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest., í þriðju umferð.

[19:51]

[19:51]

Útbýting þingskjala:

[21:23]

Útbýting þingskjals:

Fundi slitið kl. 21:49.

---------------